Selaskoðun við Ytri Tungu
af ábyrgð og öryggi
Tvær selategundir kæpa við Ísland, landselur (Phoca vitulina) og útselur (Halichoerus grypus). Við Ytri Tungu má sjá báðar tegundir, en flestir selirnir á landi eru landselir. Fjórar aðrar selategundir sjást einnig stöku sinnum við Ísland (vöðuselur, hringanóri, blöðruselur og kampselur).
Best er að skoða selina á fjöru þegar þeir liggja uppi í fjörunni. Kjöraðstæður eru milt og kyrrt veður. Sjónauki kemur að góðum notum við selaskoðun.
Villt dýr eru viðkvæm fyrir umsvifum manna
Vinsamlegast hafið í huga
- Farið ekki nær selunum en 50 metra, 100 metra ef selurinn er með kópa.
- Ef selurinn geltir, hreyfir sig eða virðist skelkaður færið ykkur þá fjær.
- Urtur yfirgefa oft kópa sína tímabundið til að afla matar. Þá má alls ekki nálgast kópana því það getur fælt urtuna frá og truflað matargjöf.
- Ekki fara á milli sels og sjávar, því selurinn þarf að hafa greiðan aðgang að vatni til að líða vel.
- Ekki vera með læti, notaðu hægar og rólegar hreyfingar til að trufla ekki dýrin. Forðastu hávaða og talaðu lágt.
- Ekki henda neinu í námunda við selina, hvorki steinum, spýtum, mat eða rusli.
- Ekki nota flass við myndatökur.
- Dreifið úr hópum svo selunum finnist þeim síður ógnað. Ef það er stór hópur á svæðinu, hinkraðu eftir að einhverjir fari — eða labbaðu í hina áttina.
- Hundar skulu ávallt vera í taumi.
Að fylgja leiðbeiningunum hér að ofan er mikilvægt fyrir sjálfbæra selaskoðun, svo við getum áfram fylgst með þessum áhugaverðu dýrum í náttúrulegum heimkynnum þeirra um ókomin ár.